Heilt og sælt verið þið öll saman.
Ég veit ekki hvort maður ætti að voga sér að reyna að skrifa
eitthvað hérna inná síðuna eftir að hafa lesið bloggið hjá ínu. Ég
hef semsagt ekkert lesið síðan áður en ég fór til Kóreu og var því
þó nokkuð lengi að ná upp lestrinum því hún skrifar þó nokkuð
langar færslur í hvert sinn, en ég sver það að lesa texta eftir
hana er bara eins og að lesa góða bók. Hæfileikarnir sem hún hefur
að koma hugsunum og skoðunum á blað, eða í tölvu
uss uss uss,
einu sinni smakkað þú getur ekki hætt. Ef þú byrjar að lesa eina af
hennar langa löngu færslum þá er ekki aftur snúið þú gerir ekkert
annað fyrr en maður hefur klárað allan textann. Hún getur líka
skrifað um hvað sem er og það er á einhvern hátt spennandi þó svo
það sé innkaupaferð í Hagkaup eða bara hennar skoðanir á einhverju.
Þetta er hreint sagt ótrúlegt og ég tek undir með öllum hinum sem
hafa skrifað það á síðuna þína ína mín að þú ert frábær penni og
hafðu það. Og að því sögðu vil ég skora á hana að skrifa aðra bók,
já góðir lesensur hún hefur gert bók , barnabók sem var rosalega
sniðug og flott og einhverra hluta vegna aldrei til útgefenda, en
þar í þeirri bók þá príddu listhæfileikar hennar bókinu og stálu
því svolítið athyglinni frá textanum. En sú bók var mjög flott og
mun meira vit í henni heldur en í öðrum barnabókum. Ég ætti því
kannski að skora á þig fyrst að gefa út þessa frábæru bók og síðan
skrifa aðra fyrir eldri lesendur. Í alvöru skrifað ína gæti rúllað
upp þessum bókamarkaði. Ég er sjálf ekki mikið fyrir að lesa
bækur eða ég les þær ekki nema ég neyðist til þess. En ég heiti því
að ef þú gefur út bók skal ég lesa hana a.m.k 20 sinnum.
Annars er allt gott að frétta af mér, ég er bara á
Akureyrinni og er að vinna aukavinnu á hótel Kea og svo náttulega
full vinna sem heimavinnnadi húsmóðir þvo þvott og baka brauð
Við Helgi erum að æfa fyrir Evrópumótið sem er í lok maí í
Dussledorf í þýskalandi. Við Helgi förum bæði að keppa ekkert smá
frábært það fara bara 5 eða 6 frá íslandi og við vorum bæði
valin í hópinn.
Brynjuís piff, , ég verð að svekkja ykkur með því að
í Kóreu fann ég svolítið miklu betra en Brynjuís kallað Red mango
sem er frosið jógúrt sem maður valdi sér ávexti út á..úuu shit hvað
það var gott!!!! ég fæ bara vatn í munninn að hugsa um það. Maður
er því ekkert spenntur fyrir Brynjuís þessa dagana.
já gott fók um páskana munum við Helgi skella okkur á Horn í
Hornafirði þar sem systir Helga býr.Snæbjörg systir hans er að
fara að skíra litla krúttið sitt sem kom í heiminn í ferbrúar.
Já ég hlakka til því mig hefur lengi langað að fara þangað og sjá
jökulsárlón og svona
Já og auðvitað ég fæ að hitta pabba hans
Helga í fyrsta skipti, hann er bóndi á Borgarfirði eystri og
auðvitað verður hann mættur í skírnina 
meira hef ég ekki að segja í bili nema sjáumst hress bless og já
Gleðilega Páska